Fréttasíða Vasa2000
Aðrir tenglar
10.03.2010 22:00:36 / einary

Strandagangan á laugardaginn

Strandagangan er á laugardaginn og um að gera að fara að tippa á röðina.  Skorum á alla að mæta.  Heimir hefur æft grimmt fyrir köku átið og þykir því sigurstranglegur.

» 0 hafa sagt sína skoðun

02.03.2010 11:11:07 / kari

Þriðja umferð getraunaleiks.

Þá er komið að þriðju umferðinni í getraunaleiknum þetta árið en á sunnudaginn næsta fer  fram vasagangan í Svíþjóð. Þessir keppendur eru líklegir til árangurs, en spá á fyrir um röð 6 fyrstu íslendinganna í göngunni.

2.starthópur    
Sigurbjörn Þorgeirsson Ofurlögga er í gríðarformi og rúllar þessari göngu upp.

3.starthópur
Birkir Stefánsson, veit ekki með hann nú, en er alltaf góður.
Magnús Eiríksson, hefur sést óvenjulítið í vetur en sýndi í Skíðastaðagöngunni að hann er til alls líklegur.

4.starthópur

Kristbjörn Sigurjónsson, Bobbi sýndi fína takta í 30 tvær helgar í röð fyrir þremur vikum síðan, og rúllaði upp þeim Vestanmönnum(Einari og Heimi og þá sérstaklega Heimi)

Kristján Rafn Guðmundsson, er að fara að ganga sína 17. Vasagöngu í röð.

 

5.starthópur

Baldur Ingvarsson, hefur gengið nokkrum sinnum, er í ágætu formi.

Þorhallur Ásmundsson, gekk 30 á Akureyri um daginn.

Njáll Eiðsson, kanttspyrnumaður að austan

Ólafur Helgason, gekk í fyrra á 6:33 og endaði númer 3617

 

6.starthóður

Kári Jóhannesson

Einar Birkir Sveinbjörnsson

 

7.starthópur

Rósmundur Númason

Jóhannes Kárason

 

Þetta eru þeir sem ég veit að eru að fara og eru a.m.k. í fyrstu sjö starthópunum,  endilega látið vita ef einhverjir detta út eða eru að bætast við nú á síðustu dögunum.

 

Kv.Kári

 


» 14 hafa sagt sína skoðun

02.03.2010 10:46:40 / kari

Getraunaleikur 2010

Á fundi stjórnar getraunaleiksins síðasta vor var ákveðið að fækka umferðunum örlítið frá því sem var veturinn 2009.  En þau mót sem telja til stiga þetta árið eru:
Skíðastaðagangan
Bláfjallagangan
Íslandsmeistarmót í 30 km göngu
Vasagangan
Strandagangan
Einstaklingsgöngur á SMÍ
Buch/Orkugangan
Fossavatnsgangan

kv.Kári

» 0 hafa sagt sína skoðun

20.02.2010 14:44:37 / einary

Hvernig er þetta með getraunirnar ?

Mín spá fyrir sunnudaginn er svona:
1.Þjálvarinn á Akureyri (man ekki hvað hann heitir)
2.Bjössi lögga
3.Bobbi
4.Hlynur

» 6 hafa sagt sína skoðun

19.02.2010 16:14:33 / kari

myndir frá sprettinum-lifandi

Hér er linkur á N4 sem birtu flotta frétt og svo er viðtal við Daníel í lokin.  Meira af þessu takk fyrir.

http://www.n4.is/tube/file/view/867/

kv.Kári

» 0 hafa sagt sína skoðun

15.02.2010 08:42:45 / kari

Sprettganga á laugardag

Á laugardaginn fór fram sprettganga innahúss og má sjá myndir frá göngunni í myndasafni mbl.is.  En keppnin var skemmtileg og fór vel fram með fjölda áhorfenda.
 http://mbl.is/mm/sport/myndasyrpa.html?album=1004

kv.Kári

» 0 hafa sagt sína skoðun

08.02.2010 12:20:34 / einary

Vestfjarmót lengrivegalengd.

Mótstjóri "Einar Y" liggur undir feld og hugsar málið.  Eins og allir vita þá er frekar lítill snjór á svæðinu en meiningin er að skoða hvernig sé að ganga á Breiðadalsheiði.  Kanski verður hægt að spora eitthvað með sleða.  Ég kem hér með upplýsingar á miðvikud. fimtudag.  Fylgist með þetta verður spennandi.  Ef einhver veit um skafl þá látið mig endilega vita.
Einar Yngvason

» 12 hafa sagt sína skoðun

04.02.2010 11:27:20 / kari

Önnur umferð getraunaleiks

Þá er komið að umferð númer tvö í getraunaleiknum.  Það er aldrei of seint að byrja að vera með, þar sem að lélegasta umferðin verður felld út í lok getraunatímabilsins.  En nú er komið að 30 km göngu sem jafnframt er Íslandsmeistarmót og verður gengin frekar krefjandi 5 km hringur(bara gaman að því, fyrir þá sem eru í formi)  Muna að spá fyrir um fyrstu 6 keppendurna, eftirfarandi eru skráðir til leiks:

Karlar 20 ára og eldri
Andri Steindórsson SKA
Brynjar Leó Kristinson SKA
Vadim Gusev SKA
Rögnvaldur Snorri Björnsson SKA
Helgi Heiðar Jóhannesson SKA
Kári Jóhannesson SKA
Ólafur H. Björnsson SKA
Gísli Einar Árnason SKA
Maron Björnsson SKA
Þórhallur Ásmundsson Ullur
Ólafur Helgi Valsson Ullur
Kristbjörn R.Sigurjónsson SFÍ
Jón Alex Kristinsson SFÓ
Axel Pétur Ásgeirsson SFÓ
Jón Árni Konráðsson SFÓ
Sigurbjörn Þorgeirsson SFÓ
Sævar Birgisson SFÓ
Þorsteinn Hymer 1978 UMFLh
tr="Stefán V. Sigtryggsson ">Stefán V. Sigtryggsson  UMFLh

» 9 hafa sagt sína skoðun

02.02.2010 14:25:45 / kari

UPPFÆRÐ Staða í Spákeppni

sæti nafn Skiðastaða- trimm stig samtals
1 Helgi 72 72
2 þráinn 64 64
3 Bobbi 60 60
4 heimir 60 60
5 Bjössi 56 56
6 Mazzi 45 45
7 Einar Y 45 45
8 Kári 41 41

» 4 hafa sagt sína skoðun

30.01.2010 09:58:53 / heimir

Marcialonga

Marcialonga gangan fer fram á morgun, sunnudag. Þeir sem hafa aðgang að norrænu sjónvarpsstöðvunum geta fylgst með, sjá http://islandsgangan.blogcentral.is/

» 2 hafa sagt sína skoðun

17.01.2010 08:29:11 / heimir

Skíðastaðagangan

Skíðastaðagangan fer fram á laugardaginn kemur, 23. janúar, og má finna nánari upplýsingar um hana m.a.. á www.skidi.is og http://islandsgangan.blogcentral.is/.  Líklegt að einhverjir hér fyrir vestan leggi land undir fót og taki þátt, a.m.k. munu Mazzi, Einar Yngva, Þröstur og Heimir vera nokkuð ákveðnir. Það væri gaman að heyra af fleirum núna á næstu dögum, svo að menn geti farið að setja saman spá.

» 14 hafa sagt sína skoðun

14.01.2010 22:00:50 / heimir

SFÍ gangan á laugardaginn

Nú á að gera aðra tilraun til að halda fyrsta mót vetrarins hér fyrir vestan. Að þessu sinni er það SFÍ gangan. Mótið fer fram á laugardaginn og verða flokkar 12 ára og yngri ræstir kl. 12:30 og kláraðir áður en hinir eldri fara af stað. Þetta verður einstaklingsstart (30 sek á milli manna) og gengið með frjálsri aðferð.

Einhver sagði að listinn yfir aldursflokka og vegalengdir væri lengri en keppendalistinn. Sá fyrrnefndi er svona:

8 ára og yngri:               1,0 km (engin tímataka)

9-10 ára:                       2,0 km (einn hringur)

11-12 ára:                      2,5 km (einn hringur)

13-14 ára:                      5,0 km (2 x2,5 km)

15-16 ára:                      6,6 km (2 x 3,3 km)

17-19 ára piltar:              9,9 km (3 x 3,3 km)

17-19 ára stúlkur:           6,6 km (2 x 3,3 km)

20-34 ára karlar:             9,9 km (3 x 3,3 km)

20-34 ára konur:             6,6 km (2 x 3,3 km)

35-49 ára karlar              9,9 km (3 x 3,3 km)

35-49 ára konur              6,6 km (2 x 3,3 km)

50+                               6,6 km (2 x 3,3 km)


» 4 hafa sagt sína skoðun

10.01.2010 10:43:41 / heimir

Boðgöngunni frestað

Eins og sést í færslunni hér fyrir neðan virtist dagurinn í dag ætla að verða frábær skíðadagur. Fyrst Worldloppet gangan í Tékklandi í beinni útsendingu á netinu, síðan Tour de Ski kvenna, boðgangan okkar á Dalnum, þáttur um tékknesku gönguna í sjónvarpinu og svo Tour de Ski karla. En nú er strax farið að kvarnast úr þessu. Boðgöngunni hefur verið frestað vegna lélegra aðstæðna á Dalnum eftir hlákuna undanfarið. Vonbrigði nr. 2 voru svo að netútsendingin frá mótinu í Tékklandi er bara aðgengileg tölvum með sænskar ip tölur. Það væri eftir öðru að rafmagnið færi þegar Tour de Ski byrjar í sjónvarpinu ...

» 0 hafa sagt sína skoðun

09.01.2010 10:24:45 / heimir

Mót á Dalnum, sjónvarpinu og tölvunni

Á morgun, sunnudag, verður fyrsta skíðagöngumót ársins hjá okkur hér á Ísafirði, en það er hin árvissa boðganga. Í þessu móti er megin reglan sú að í hverri sveit sé eitt barn, einn unglingur og einn fullorðinn.  Þetta er hugsað sem skemmtiganga þar sem fólk skilur keppnisskapið eftir heima, hvernig sem mönnum gengur nú að muna eftir því.

Þennan sama dag veður svo auðvitað bein útsending frá lokaáfanganum í Tour de Ski í sjónvarpinu. Boðgöngunni okkar er skotið inn á milli karla- og kvennagöngunnar þar ytra og hefst kl. 13:00, þannig að við getum horft á konurnar í Tour de Ski, skotist svo upp á Dal og gengið boðgönguna áður en við brunum heim og sjáum Peter Northaug og Lukas Bauer berjast um sigurinn upp svigbakkann í Val di Fiemme.

Til að flækja málið svolítið verður Worldloppet gangan í Tékklandi einnig þennan dag, en hún heitir jú því þjála nafni Jizerská padesádka. Eins og sjá má á Íslandsgönguvefnum (hlekkur þangað hér til vinstri) verður sú ganga sýnd í beinni útsendingu á vef sænska sjónvarpsins, auk þess sem SVT 1 verður með 45 mínútna samantekt um gönguna kl. 13:25. Það verður því nóg að gera þennan sunnudaginn.

» 0 hafa sagt sína skoðun

16.12.2009 23:42:59 / einary

Heyrðist í heitapottinum

Það barst í tal í heitapottinum af hverju þessi vegur um Arnkötludal var gerður.  Eingöngu til þess að minnka umferð á hjólaskíða æfingasvæði bóndans á Heydalsá og Tröllatungu bóndans enda hafi þeir æft gríðarlega frá opnun vegarins.
  Annars er það að frétta héðan að Vestan að við höfum farið lítið á skíði og æft minna en lítið.  Nei annars eru menn að æfa ágætlega en stefnan er þó meira á þríþraut en skíði þessa stundina.  Allt er þetta þó æfing.  Við erum flestir á hlaup.com

» 0 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 34